| | Guðjón Torfi Sigurðsson's Journals Recent Comments Jæja, þá var komið að því að við frændsystkinin myndum hittast á Kollsá. Reyndar er nú eins og fleiri og fleiri okkar flýji úr landi þegar til stendur að hittast, ég vona að það sé bara tilviljun ;)
Ég kom fyrstur manna á staðinn á föstudagskvöldið, en Indriði frkvstj. og Daníel (du du durulu du du du du du) kíktu á fimmtudagskvöld og komust að því að búið var að dreifa kúmeni út um allt eldhús og búr, og jafnvel inn í stofu líka! Reyndar fengu þeir verktaka í að moka heimreiðina þar sem að þeir sáu fram á að þurfa að láta draga sig aftur þegar þeir færu ef það væri ekki gert.
Eftir að hafa sópað og þurrkað aðeins af mættu þeir Maggi og Stjáni á nýja Patrolnum hans Magga og með snjósleða í eftirdragi. Á kerru sko. Fengum okkur létta hressingu og æstum Ingþór, Lísu og Kalla upp í að kíkja í jeppaleik á laugardeginum.
Vöknuðum svo eldsnemma, snemma og að síðustu vöknuðum við upp úr klukkan níu og fórum að undirbúa jeppaferð yfir heiðina að Glerárskógum. Vil bara benda áhugasömum kjarkmönnum á það að pylsur í brauði bragðast ágætlega með barbeque sósu! (Verð að muna eftir meðlæti næst...)
En við lögðum á heiðina frá Prestbakka og héldum áleiðis upp að Hrafnadal. Færið leiðinlegt og pundum fækkaði jafnt og þétt í dekkjunum. Ekki þurfti að hleypa úr á sleðanum, fínt færi fyrir svoleiðis græju. Eftir að hafa lent í drullupytt með annað framhjólið þá komumst við með krókaleiðum í þokunni upp að Hjarðarfelli þar sem létti til smá stund. Síðan var keyrt niður að leitarkofa á Ljárskógaheiði með aðstoð gps og tölvukorts og niður með Fáskrúð þar sem Ingþór, Lísa og Kalli komu á móti okkur.
Sökum óviðráðanlegra orsaka þurfti að fá hraðsuðu á sleðann og bjargaði Karl Ingi okkur náðarsamlegast og það þrátt fyrir að hann væri á leið á Þorrablót síðar um kvöldið. Öðlingur alltaf hann Kalli :)
En svo brunuðum við aftur norður yfir Laxárdalsheiðina, enda menn orðnir svangir eftir rúntinn. Þegar komið var í hús var hafist handa við að undirbúa matseld og grennslast fyrir um eftirlegukindur. Eydís og Óli mættu nokkru á eftir okkur og var þá byrjað að kynda upp í grillinu. Fréttum við að Fanney og herra myndu ekki mæta, né heldur Steini. Olli þetta nokkrum skeytasendingum milli frændsystkina, sem endaði með því að hér eftir var þetta kallað "best of" hluti frændsystkinanna ;)
En grillið virkaði vel, hvort sem grillað var lamb, kjúklingur, svín eða pylsur og meðlætið var ekki skorið við nögl, sama hvort það var í föstu formi eða fljótandi. En það er rétt að hafa þetta ekki lengra, enda sést mun betur hvernig kvöldið gekk fyrir sig á myndasíðunni!
| | |